Vörumerkið sem 98% atvinnuleitenda þekkja – Alfreð er skráð vörumerki maímánaðar

10. júní 2026Vörumerki
Að heimsækja skrifstofu Alfreðs í Kópavoginum er meira eins og koma inn á fallegt heimili en á dæmigerða skrifstofu. Ekki bara er teppi í anddyrinu, bækur á veggjunum og gítar í horninu, heldur taka hundarnir Þíó og Alfreð á móti manni. Vingjarnlegar móttökur þeirra eru lýsandi fyrir andann sem ríkir hjá fyrirtækinu sem rekur og þróar vinsælasta ráðningarvettvang landsins, Alfreð. Orðmerkið ALFRED er nýskráð hjá Hugverkastofunni og hefur verið valið skráð vörumerki maímánaðar.
Það voru Anna Katrín Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri og Elsa Thorsteinsson, sölu- og markaðsstjóri, sem sussuðu á Þíó og Alfreð og buðu höfund þessa pistils velkominn í spjall um fyrirtækið, kerfið og vörumerkið Alfreð.
Alfreð var einkaþjónn Batman
Eðlilega berst talið fyrst að nafninu Alfreð og hvernig það hafi komið til að það hafi verið valið fyrir atvinnuleitarvef og smáforrit. Út frá sjónarhorni vörumerkjaverndar er þetta val til fyrirmyndar. Nafnið Alfreð er á engan hátt lýsandi fyrir atvinnuleit og öll þau tengsl sem neytendur gera á milli nafnsins og atvinnuleitar hafa verið sköpuð af fyrirtækinu sjálfu. Slíkt vörumerki er almennt talið sterkt í hugverkarétti.
En nóg af hugverkarétti í bili. Anna segir að nafnið Alfreð sé fengið að láni frá Alfred Pennyworth einkaþjóni Batman. „Hann var mjög þjónustulundaður, úrræðagóður og ávallt reiðubúinn,“ segir Anna og það séu gildi sem Alfreð starfi enn samkvæmt. Hún segir að þetta nafn hafi reynst fyrirtækinu einstaklega vel og í dag sé Alfreð stærsti miðillinn sem íslenskir atvinnuleitendur leiti í, vefurinn fái yfir 10 milljón heimsókna á ári og um og yfir 98% atvinnuleitenda þekki vörumerkið.
„Hann var mjög þjónustulundaður, úrræðagóður og ávallt reiðubúinn“
Hljóð og mynd þurfa að fara saman
Elsa segir að þau leggi mikla áherslu á að halda vel utan um vörumerkið. Það sé létt yfir því og það sé ekki of alvarlegt en á sama tíma sé kappkostað að notendur upplifi að þeir geti treyst vörumerkinu. „Það er nauðsynlegt að hljóð og mynd fari saman þegar kemur að vörumerkjum,“ segir hún og útskýrir að útlit myndmerkisins og litir séu ráðandi fyrir allt efni sem kemur frá Alfreð.
Sokkarnir skapa sérstöðu
Í því samhengi verður ekki hjá því komist að tala um sokkana sem margir lesendur þessa pistils kannast sjálfsagt við, enda vandfundin betri give-away-vara en sokkarnir frá Alfreð. „Það tengja allir við sokkana og þeir skapa okkur sérstöðu og gefa okkur tækifæri til að ná til okkar mikilvægustu markhópa: atvinnuleitenda og mannauðsfólks á alls konar ráðstefnum og sýningum“ segir Anna.

Gott vörumerki verður enn mikilvægara með tilkomu gervigreindar
En eru smáforrit við það að verða úrelt nú þegar gervigreindin gerir það sífellt auðveldara og ódýrara að þróa nýjar og jafnvel sérsniðnar hugbúnaðarlausnir? Elsa svarar því til að þessu sé þveröfugt farið og gervigreindin geri sterk vörumerki enn mikilvægari en áður. „Það sem aðgreinir þig frá öðrum sem koma inn á markaðinn er sterkt vörumerki sem allir þekkja og það færðu ekki með gervigreind," segir hún. „Lausnir sem þróaðar eru með gervigreind líta meira og minna allar eins út og það vantar alla natnina við vörumerkið sem skiptir svo miklu máli til að tengja við notandann.“
„Það sem aðgreinir þig frá öðrum sem koma inn á markaðinn er sterkt vörumerki sem allir þekkja og það færðu ekki með gervigreind"
Mikilvægt að vanda val á flokkum vöru og þjónustu við skráningu
Alfreð á nokkur skráð orðmerki og myndmerki hér á landi. Fyrirtækið hefur einnig skráð vörumerki hjá Hugverkastofu Evrópusambandsins (EUIPO) og í Bretlandi og er að skoða frekari skráningar í takt við vöxt fyrirtækisins. Aðspurð játar Elsa að skráningarferlið hafi ekki alltaf verið vandræðalaust og andmæli við skráningu hafi borist á nokkrum mörkuðum, enda eru til margir Alfreðar í hinum ýmsu geirum. Hún segi að fyrirtækinu hafi þó tekist að vinna sig í gegnum þær hindranir með aðstoð sérfræðinga.
Elsa nefnir að í því sambandi sé mjög mikilvægt að vanda sig við val á flokkum á vöru og þjónustu sem óskað sé eftir að vörumerki sé skráð fyrir. Þá gildi ekki endilega að leitast eftir að fá sem víðtækasta vernd heldur að skrá sértækt þá flokka sem virkilega skipta fyrirtækið máli. Þau hafi líka áttað sig á því að stundum sé æskilegra að skrá eingöngu orðmerki frekar en myndmerki, því það veiti öflugri vernd og þá sé t.d. hægt að gera breytingar á myndmerki án þess að það hafi áhrif á vörumerkjaskráninguna.
Það eru ekki allir sem átta sig á þeim verðmætum sem liggja í öflugu vörumerki eða hvaða máli það skiptir að skrá vörumerki, oft fleiri en eitt og fleiri en tvö á helstu mörkuðum. Af spjallinu við þær Önnu og Elsu að dæma virðast þær vera með þessi mál á hreinu og Alfreð náð því sem flesta vörumerkjaeigendur dreymir um, að flestir þekki vörumerkið þitt og það sé hluti af daglegu lífi notenda.
Vörumerki V0141681 skráð 18. maí
Sótt var um skráningu orðmerkisins ALFRED í mars 2026. Það var skráð 18. maí síðastliðinn í flokki 35 fyrir auglýsingar, auglýsingaþjónustu, atvinnuleitarþjónustu o.fl.
Starfsfólk Hugverkastofunnar velur skráð vörumerki mánaðarins
Skráð vörumerki mánaðarins er unnið eftir fyrirmynd annarra norrænna hugverkastofa. Markmiðið með því að velja eitt skráð vörumerki til umfjöllunar í hverjum mánuði er að vekja athygli á mikilvægi vörumerkjaskráninga og kynna starfsemi Hugverkastofunnar.
Starfsfólk stofnunarinnar kýs vörumerki mánaðarins úr hópi nýskráðra íslenskra vörumerkja sem standa fyrir íslenska vöru og/eða þjónustu. Skráð vörumerki mánaðarins er vörumerki með skýr sérkenni, gott aðgreiningarhæfi og skemmtilega sögu að baki sér.
