Nýjustu fréttir

Þjóðskjalasafn Íslands samþykkir fyrstu rafrænu skil Hugverkastofunnar
04. mars 2026Hugverkastofan
Þjóðskjalasafn Íslands hefur samþykkt vörsluútgáfu rafræns málasafns Hugverkastofunnar fyrir tímabilið 2014–2018, alls 54.000 mál. Um er að ræða fyrstu rafrænu skil stofnunarinnar og mikilvægan áfanga í rafrænni skjalavörslu hennar.

Konur enn í miklum minnihluta í tækninýsköpun samkvæmt nýrri skýrslu Evrópsku einkaleyfastofunnar
03. mars 2026TölfræðiAlþjóðlegt samstarf
Konur voru aðeins 13,8% evrópskra uppfinningamanna hjá Evrópsku einkaleyfastofunni (EPO, European Patent Office) árið 2022. Hlutfall kvenna meðal íslenskra uppfinningamanna var metið 11,9% á tímabilinu 2018–2022. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýútgefinni skýrslu EPO um hlut kvenna í einkaleyfisumsóknum, tæknidrifnu frumkvöðlastarfi og STEM-greinum í Evrópu.

Affineva vinnur Gulleggið 2026
27. febrúar 2026Viðburðir
Líftækniteymið Affineva bar sigur úr býtum í lokakeppni Gulleggsins 2026. Affineva vinnur að þróun nýrrar tækni til að beina krabbameinslyfjum sérstaklega að krabbameinsfrumum og styðja við þróun næstu kynslóðar krabbameinslyfja og greininga.