Vörumerki

Umsókn og endurnýjun vörumerkis

  Krónur
Umsóknar- eða endurnýjunargjald, einn vöru- eða þjónustuflokkur innifalinn: 40.600
Viðbótargjald fyrir hvern vöru- og/eða þjónustuflokk umfram einn: 8.900

Breyting á merki eða beiðni um hlutun

  Krónur
Beiðni um breytingu á skráðu merki: 10.000
Beiðni um hlutun umsóknar eða skráningar: 29.900

Andmæli og afnám skráningar

  Krónur
Tilkynning um andmæli eða krafa um að skráning verði felld úr gildi: 50.000

Endurupptaka

  Krónur
Gjald fyrir beiðni um endurupptöku: 13.000

Áfrýjun

Hugverkastofan er alfarið fjármögnuð með gjöldum fyrir umsóknir og þjónustu. Núverandi gjaldareglugerð nr. 1279/2024 tók gildi 15. febrúar 2025.

Reikningur Hugverkastofunnar fyrir millifærslur:
Kennitala: 650191 2189
Reikningur: 0111 26 12189

Viðvörun vegna falsaðra greiðslubeiðna
Hugverkastofunni hafa borist ábendingar um að íslenskum umsækjendum hafi borist erindi frá erlendum aðilum þar sem óskað er eftir greiðslu fyrir birtingu vörumerkja í erlendum gagnagrunnum. Hugverkastofan hefur enga tengingu við þessa aðila og biður viðskiptavini sína um að greiða ekki umbeðin gjöld berist þeim svona erindi þar sem tilgangur þeirra virðist eingöngu vera sá að blekkja umsækjendur.