Lögfræðingur
Melkorka Þöll VilhjálmsdóttirLögfræðingurmelkorka.th.vilhjalmsdottir@hugverk.is

Venja sem varð að vörumerki

Venja

30. apríl 2026Vörumerki

Í búðarferð í Nettó kviknaði hugmynd sem síðar varð að íslensku vörumerki sem hefur vaxið og dafnað og stefnir nú á erlenda markaði. Venja er skráð vörumerki mánaðarins hjá Hugverkastofunni.

Sirrý Svöludóttir, framkvæmdastjóri og annar stofnandi Venju, man augnablikið vel. Hún stóð í versluninni árið 2016 og horfði á konur fylla körfurnar af fæðubótarefnum á tilboðsverði. Úrvalið var mikið og vítamínboxin voru mörg. Loforðin ólík. Þarfirnar óljósar og konurnar virtust þurfa sjálfar að að finna út hvað hentaði þeim og þeirra heilsu best.

„Ég fann bara sterkt innra með mér að mig langaði til að leysa þetta vandamál,“ segir Sirrý. „Konur eiga ekki að þurfa að standa fyrir framan 700 dollur af ólíkum vítamínum og giska á hvað henti þeirra þörfum.“

Þetta var upphafið að Venju, sem Sirrý stofnaði ásamt Rakel Guðmundsdóttur árið 2022. Í dag er Venja íslenskt vörumerki sem þróar og selur bætiefni sérstaklega sniðin að þörfum kvenna og hormónaheilsu þeirra. Vörurnar eru seldar í netversluninni Venja.is, þar sem konur geta skráð sig í áskrift að vítamínpökkum. Hver pakki er hugsaður fyrir einn dag í senn.

Venja þróar og selur bætiefni sérstaklega sniðin að þörfum kvenna og hormónaheilsu þeirra.
Venja þróar og selur bætiefni sérstaklega sniðin að þörfum kvenna og hormónaheilsu þeirra.

Hugmyndin er einföld. Að gera það auðveldara fyrir konur að taka inn bætiefni með reglubundnum hætti, án þess að þurfa sjálfar að týnast í frumskógi ólíkra vara, skammta og skilaboða.

„Flækjustigið var bara toppurinn á ísjakanum,“ segir Sirrý. „Þegar við Rakel fórum að móta hugmyndafræðina sáum við fljótt að konur eru með miklu flóknari þarfir en bætiefnaheimurinn vill oft meina.“

Sama taflan dugar ekki út ævina

Sirrý talar af mikilli sannfæringu um það sem hún telur hafa vantað á markaðinn. Að konum hafi of lengi verið boðið upp á of einfalda mynd af eigin líkama. Sama vara, sama tafla, sama lausn. Óháð því hvort konan er ung, á barneignaaldri, barnshafandi, með barn á brjósti, komin á breytingaskeið eða lengra á lífsleiðinni.

„Hormónin sveiflast gríðarlega í gegnum lífsleiðina og næringarþörf kvenna breytist eftir lífsskeiðum,“ segir hún. „Flest vörumerki voru með sömu skilaboð til kvenna, að sama vítamíntaflan ætti að duga þeim út ævina. Það gekk einfaldlega ekki upp þegar við skoðuðum hvað þarfir kvenna eru breytilegar.“

„Konur lifa með hormónum sem stýra svo gríðarlega miklu: orku, svefni, skapi, frjósemi og öllum lífsskeiðum frá blæðingum til tíðahvarfa,“ segir Sirrý. „Samt voru mörg bætiefni í raun hönnuð út frá karlmanni í meðalstærð. Það er eiginlega ótrúleg staða á jafn stórum markaði.“

Að hennar mati var þetta ekki aðeins markaðstækifæri. Þetta var eitthvað sem þurfti einfaldlega að laga.

Venja á að vera einfaldur hluti af deginum. Viðskiptavinur opnar pakkann, tekur skammtinn og veit að einhver hefur pælt í þessu fyrir fyrir þig.
Venja á að vera einfaldur hluti af deginum. Viðskiptavinur opnar pakkann, tekur skammtinn og veit að einhver hefur pælt í þessu fyrir fyrir þig.

Nafnið sem varð að rútínu

Nafnið Venja kom til Sirrýjar einn daginn. Hún lýsir því sem fallegu íslensku orði sem hafi strax passað utan um hugmyndina.

„Venja þýðir rútína. Eitthvað sem þú gerir daglega án þess að flækja það. Eitthvað sem heldur þér í jafnvægi,“ segir hún. „Það fangar nákvæmlega það sem við viljum að bætiefni séu: einfaldur hluti af deginum sem þú treystir.“

Nafnið þurfti líka að virka erlendis. Frá upphafi sáu Sirrý og Rakel fyrir sér að Venja gæti orðið vörumerki utan Íslands. Þess vegna skipti máli að nafnið væri stutt, mjúkt og auðvelt í framburði á öðrum tungumálum.

Stóra systirin sem segir þér satt

Þegar Sirrý er beðin um að lýsa því hvernig konur eigi að upplifa Venju, kemur svarið hratt.

„Eins og stóru systur sem þú treystir,“ segir hún. „Sú sem segir þér satt, skilur hvað þú ert að ganga  í gegnum því hún hefur farið sömu leið og mætir með það sem þú þarft án þess að gera mál úr því,“ segir Sirrý.

„Sem vara á Venja að vera einfaldur hluti af deginum. Þú opnar pakkann, tekur skammtinn og veist að einhver hefur pælt í þessu fyrir þig. Sem vörumerki á Venja að minna konur á að líkami þeirra sé ekki vandamál sem þurfi að leysa, heldur kerfi sem þurfi að skilja og styðja.“

Hlýtt, traust og óhrætt

Myndmerki Venju var hannað af Öggu Jónsdóttur, margverðlaunuðum hönnuði hjá Pipar TBWA. Sirrý segir að þær hafi viljað að merkið endurspeglaði karakter Venju og væri hlýtt, traust og hreint, en líka óhrætt.

„Það er ekki of fágað og ekki of mjúkt,“ segir hún. „Það er hægt að sjá ýmislegt í merkinu sem vísar í það sem við stöndum fyrir, til dæmis stafinn V, leg og eggjastokka og hormónasveiflurnar í bylgjunum.“

Þessi hugsun nær lengra en að útliti vörunnar. Hún nær til alls sem Venja gerir. Tónsins, umbúðanna, vörulínanna og orðanna sem eru notuð og ekki síður orðanna sem eru ekki notuð.

„Venja er búin til af konum, fyrir konur,“ segir Sirrý. „Það mótar hvernig við hugsum, hvernig við tölum og hvaða ákvarðanir við tökum á hverjum degi.“

 

Orð- og myndmerkið VENJA var skráð 18. apríl 2026.
Orð- og myndmerkið VENJA var skráð 18. apríl 2026.

Hugverkarétturinn frá fyrsta degi

Fyrir okkur hjá Hugverkastofunni er óhjákvæmilegt að spyrja um vörumerkjavernd. Hvenær fóru þær að hugsa um að verja merkið?

„Strax frá byrjun,“ segir Sirrý. „Það var mjög meðvituð ákvörðun.“

Hún segir að ef fólk ætli að byggja eitthvað sem eigi að standa lengi, þá þurfi það að byrja á því að tryggja að enginn geti tekið nafnið, merkið eða söguna frá því.

„Hugverkavernd er eitt af því allra mikilvægasta sem maður gerir í byrjun og því miður oft eitt af því sem stofnendur fresta,“ segir hún. „Það er auðvelt að halda að þetta sé eitthvað sem maður hugsi um seinna þegar maður er kominn lengra. En sannleikurinn er sá að ef vörumerkið þitt nær að hafa þýðingu, þá er einhver annar að taka eftir því líka. Og þá getur það verið of seint.“

„Hugverkavernd er eitt af því allra mikilvægasta sem maður gerir í byrjun og því miður oft eitt af því sem stofnendur fresta,“
Quote Icon

Ráð hennar til annarra stofnenda er skýrt: Skráið vörumerkið um leið og ákvörðun um nafn liggur fyrir. Áður en umbúðir eru prentaðar. Áður en heimasíðan fer í loftið.

„Þetta er lítil fjárfesting sem ver allt sem þú byggir ofan á,“ segir hún.

Sirrý hefur lært margt á því að byggja upp Venju. En eitt stendur upp úr: Vörumerki verður ekki sterkt nema það hafi tilgang.

„Ef ríkur tilgangur og ástríða eru ekki á bak við vörumerkið, þá tengir fólk aldrei almennilega við það,“ segir hún. „Það er ekki nóg að vera með góða vöru. Það verður að vera sterk sýn að baki.“

Stærsta árið hingað til

Venja stendur nú á tímamótum. Sirrý segir að árið fram undan sé stærsta og mikilvægasta ár fyrirtækisins hingað til.

Fyrstu skrefin í útrás eru fram undan og samhliða er unnið að uppfærslu á vörumerkinu og útliti þess. Nýjar vörulínur eru einnig í undirbúningi, sem eiga að fylgja konum betur eftir lífsskeiðum þeirra, frá ungum konum yfir í meðgöngu, brjóstagjöf, breytingaskeið og áfram.

„Stærsta skrefið er útrásin til Danmerkur,“ segir Sirrý. „Við byrjum þar af því að við sjáum mikla þörf og af því að nálægðin gerir okkur kleift að gera þetta vel og á okkar hraða.“

Síðar horfir Venja til Svíþjóðar og annarra Norðurlanda. Vörumerkið sem hófst með hugmynd á gólfinu í Nettó er því farið að horfa út fyrir landsteinana.

Sterk skilaboð frá konum

Þegar Sirrý er spurð hvort einhver ein saga standi upp úr í sögu Venju, staldrar hún ekki við eitt tiltekið atvik. Það eru frekar samtölin sem sitja eftir. Skilaboðin frá konum. Upplifanirnar. Þakkirnar. Sögurnar sem koma aftur og aftur.

„Við fáum reglulega til okkar konur sem segja okkur frá jákvæðri upplifun,“ segir hún. „Minni tíðaverkjum, mildari einkennum á breytingaskeiðinu, betri svefni, jafnara skapi og minni streitu.“

„Það er þetta sem heldur okkur við efnið hvern einasta dag,“ segir Sirrý. „Að konur finni að Venja skipti þær máli.“

Það er kannski kjarninn í Venju. Vörumerki sem kviknaði í búðarferð, óx út frá raunverulegri þörf og er ætlað að gera flókinn heim aðeins einfaldari. Ekki með neinum töfralausnum. Heldur með trausti, rútínu og þeirri hugmynd að stundum geti góð venja breytt meiru en maður heldur.

 

Vörumerki V0141409 skráð 14. mars

Sótt var um skráningu orð- og myndmerkisins VENJA í febrúar 2025. Það var skráð 18. apríl síðastliðinn í flokki 5 fyrir fæðubótarefni og flokki 35 fyrir smásöluþjónustu og heildsölu  með fæðubótarefni.

Starfsfólk Hugverkastofunnar velur skráð vörumerki mánaðarins

Skráð vörumerki mánaðarins er unnið eftir fyrirmynd annarra norrænna hugverkastofa. Markmiðið með því að velja eitt skráð vörumerki til umfjöllunar í hverjum mánuði er að vekja athygli á mikilvægi vörumerkjaskráninga og kynna starfsemi Hugverkastofunnar.

Starfsfólk stofnunarinnar kýs vörumerki mánaðarins úr hópi nýskráðra og nýendurnýjaðra íslenskra vörumerkja sem standa fyrir íslenska vöru og/eða þjónustu. Skráð vörumerki mánaðarins er vörumerki með skýr sérkenni, gott aðgreiningarhæfi og skemmtilega sögu að baki sér.