„Myndlist er fyrir alla!“

30. september 2026Vörumerki
„Það er ákveðinn þröskuldur fyrir fólk sem ekki lifir og hrærist í listum að stíga inn í listagallerí,“ segir Jóhann Ágúst Hansen, framkvæmdastjóri og annar eigenda Gallerís Foldar. „En myndlist er fyrir alla og netið hefur lækkað þennan þröskuld og mun fleiri taka nú þátt í uppboðum gallerísins á netinu en mættu áður á uppboð í raunheimum.“
Orð- og myndmerki Gallerís Foldar er skráð vörumerki septembermánaðar hjá Hugverkastofunni. Af því tilefni litum við inn á Rauðarárstíginn, þar sem þröskuldurinn í útidyrunum reyndist ærið hár þeim sem hér skrifar og hefur lítið vit á myndlist. En Jóhann bauð upp á kaffi á skrifstofunni sem ber öll merki þess að vera notuð af skapandi fólki og fljótlega smitaðist samskiptastjórinn af listabakteríunni og fór að sjá fyrir sér að mörg verkanna sem hanga uppi í Gallerí Fold myndu sóma sér vel á stofuveggnum heima.
Saknar stundum gömlu, góðu uppboðanna
Jóhann segir að Gallerí Fold sé í dag umboðsaðili fyrir um 40 íslenska myndlistarmenn og hægt sé að kaupa verk eftir þá í galleríinu sem auk þess setji reglulega upp sýningar með verkum þeirra. Hinn hluti starfseminnar felist í listaverkauppboðum sem Jóhann segir að hafi færst alveg á netið eftir COVID. Hann segir að stundum séu allt að 200 manns að bjóða í eitt verk á netuppboði og margir bíði fram á síðustu stundu með að setja inn tilboð. Það geti þess vegna verið mjög taugatrekkjandi að fylgjast með uppboðunum, sérstaklega þegar verðmæt verk eru boðin upp.

Aðspurður játar Jóhann samt að hann sakni stundum uppboðanna sem hann stýrði í húsnæði gallerísins allt til ársins 2023. „Jú, þetta var mikil stemning og svolítið eins og fólk sér í bíómyndunum. Við buðum upp eitt verk á mínútu. Ég hef stundum verið beðinn um að tala jafn hratt og maður gerði sem uppboðshaldari á þessum uppboðum en ég hef komist að því að ég get það ekki nema í pontu á uppboði. Maður fór í ákveðið hlutverk sem uppboðshaldari og það var háð ákveðnum stað og stund og ákveðinni stemningu,“ segir hann og það er ekki laust við að það komi smá glampi í augun þegar hann rifjar upp þetta hlutverk.
„Jú, þetta var mikil stemning og svolítið eins og fólk sér í bíómyndunum."
Gallerí Fold heldur uppboð á netinu í hverri viku og verkin koma flest úr dánarbúum, segir Jóhann. Uppboðin eru misstór og nú er til dæmis nýlokið uppboði sem kallað er Haustperlur þar sem boðin voru upp um 100 dýrari verk, m.a. eftir gömlu meistarana, svo sem Kjarval, Ásgrím Jónsson, Louisu Matthíasdóttur og fleiri. Samkvæmt Jóhanni má oft gera góð kaup á þessum uppboðum þó þess sé gætt að verk séu ekki seld undir ákveðnu lágmarksverði.

Merkið vísar í landslag og pensilstroku
Þegar talið berst að vörumerkinu sem var skráð segir Jóhann að honum þyki mjög vænt um nafnið Gallerí Fold og tengi það sterkt við móður jörð og Ísland. Myndhluti merkisins vísi í fjallgarð og landslag en það sé líka pensilstroka. Merkið var nýlega endurhannað af Margréti Laxness, grafískum hönnuði og myndlistarkonu, sem skilgreindi útlit gallerísins í víðara samhengi og ákvað hvaða letur ætti að nota og nákvæmlega hvaða bláa lit. Jóhann segir að merkið sé notað á nánast öllu efni sem fyrirtækið sendi frá sér og blái liturinn, sem standi fyrir traust, sé líka mjög áberandi í öllu sem frá því kemur. „Húsið er t.d. málað í þessum sérstaka bláa lit,“ segir Jóhann og fær í kjölfarið ábendingu um að liti og litasamsetningar sé í sumum tilvikum hægt að skrá sem vörumerki.

Fjölmiðlaumfjöllun um Pálsson ýtti við umsókn
En hvað kemur til að sótt var um skráningu á rótgrónu vörumerki eins og Gallerí Fold? Jóhann játar að það hafi verið fjölmiðlaumfjöllun um deilur um vörumerkið Pálsson sem hafi ýtt við honum að skrá loksins vörumerkið. „Það væri slæmt að upplifa það eftir áratuga uppbyggingu á vörumerkinu að mega einn daginn ekki nota vörumerkið!“ Hann segir að hann hafi sjálfur sent inn umsóknina á netinu og það hafi verið mjög einfalt og varla tekið meira en tíu mínútur að sækja um. Mestur tíminn hafi farið í að ákveða hvað ætti að skrá nákvæmlega og velja á milli þess að skrá orðmerki, myndmerki eða orð- og myndmerki.
„Það væri slæmt að upplifa það eftir áratuga uppbyggingu á vörumerkinu að mega einn daginn ekki nota vörumerkið!“
Jóhann segir líka að það hafi verið smá pælingar í kring um val á vöru- og þjónustuflokkum sem sótt var um skráningu á merkinu fyrir en umsækjendur séu leiddir mjög vel í gegnum ferlið og niðurstaðan hafi verið að sækja að sinni bara um skráningu í flokkum sem tengjast núverandi starfsemi fyrirtækisins frekar en að skrá flokka sem tengist vörum og þjónustu sem kannski verði boðið upp á í framtíðinni.
Ímynd og orðspor búa til verðmæti
Að lokum segist Jóhann vilja hvetja listamenn og lítil fyrirtæki í listageiranum til að huga að þessum málum og skrá vörumerkin sín. „Það eru ímynd og orðspor listamanna sem búa til verðmætin í þessum geira og vörumerkjaskráning er liður í því að passa upp á og tryggja þessa ímynd.“
Við gætum ekki verið meira sammála.
