Samskiptastjóri
Eiríkur SigurðssonSamskiptastjórieirikur@hugverk.is

Bera var móðir Egils Skallgrímssonar og er skráð vörumerki mars-mánaðar

Bera Vörumerki Mánaðarins Vefur

31. mars 2026Vörumerki

Það er gaman að koma í heimsókn í höfuðstöðvar Beru og Ölgerðarinnar að Grjóthálsi og gestum verður strax ljóst að fyrirtækin leggja mikið upp úr vörumerkjunum sínum og sögu þeirra. Það fyrsta sem blasir við er stórt Malt-lógó og síðan ganga gestir eftir löngum gangi þar sem gömlum umbúðum og vörumerkjum Ölgerðarinnar er gert hátt undir höfði í sögusýningu. 

Nú er komið að næsta kaflanum í sögu félagsins sem hófst árið 1913 með stofnun Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar. Félagið, sem skráð er Kauphöllinni, hefur tekið upp nafnið Bera. Nafnið er nýskráð orðmerki hjá Hugverkastofunni og er skráð vörumerki mars-mánaðar.

Kunnuglegt Malt-merkið er það fyrsta sem blasir við í heimsókn í höfuðstöðvar Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar og móðurfélagsins Beru., Malt var fyrsta vara Ölgerðarinnar sem var stofnuð árið 1913.
Kunnuglegt Malt-merkið er það fyrsta sem blasir við í heimsókn í höfuðstöðvar Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar og móðurfélagsins Beru. Malt var fyrsta vara Ölgerðarinnar sem var stofnuð árið 1913.

Jón Þorsteinn Oddleifsson, nýr forstjóri Beru, og Dagný Kristjánsdóttir, sérfræðingur í stafrænum samskiptum, tóku  á móti samskiptastjóra Hugverkastofunnar við enda sögugangsins á kósý kaffibar sem líka gegnir hlutverki móttöku. Yfir barnum hanga orðin jákvæðni, áreiðanleiki, hagkvæmni og framsækni og það þarf ekki að ræða lengi við þau Jón og Dagnýju til að átta sig á því að þessi einkunnarorð eiga einstaklega vel við fyrirtækið sem þau starfa fyrir. 

Af hverju að breyta svona rótgrónu nafni?

Fyrsta spurningin liggur beint við: af hverju að breyta nafni sem er jafnrótgróið þjóðarsálinni og Ölgerðin?

Jón segir að Ölgerðin hafi verið komin í margskonar rekstur sem ekki tengdist ölgerð beint, einkum eftir kaupin á Gæðabakstri og Kjarnavörum í fyrra. Þess vegna var tekin sú ákvörðun að breyta nafninu á móðurfélaginu en stofna um leið nýtt dótturfyrirtæki sem ber áfram nafn Ölgerðarinnar. „Það má eiginlega segja að með þessum breytingum sé Ölgerðin komin nær kjarnastarfseminni aftur,“ segir Jón.

Bera, Brák, Kveldúlfur, Mýrar og Agla

En af hverju Bera? Glöggir lesendur hafa sennilega þegar áttað sig á því. Bera var móðir Egils Skallagrímssonar í Egilssögu og nöfn og vörumerki Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar hafa frá upphafi verið tengd Egilssögu. Fasteignafélagið sem á húsnæðið heitir Mýrar, áfyllingarverksmiðjan heiti Brák, eimingarhúsið Kveldúlfur, Borg brugghús framleiðir handverksbjór og Agla gosgerð handverksgos. „Það er svolítið áhugavert að kynhlutlausa orðið Parent Company er þýtt á íslensku sem móðurfélag. Það lá þess vegna eiginlega alveg beint við að nefna móðurfélagið eftir Beru Yngvarsdóttur, móður Egils, segir Jón.“

Vörumerkið í framtíðinni

Jón segir að væntingar standi til þess að Bera muni öðlast sinn sess í huga þjóðarinnar og að merkið muni standa fyrir traust og öflugt fyrirtæki á sviði matar og drykkjar, traustan og hagkvæman rekstur og að eigendur matvælafyrirtækja muni líta á Beru sem vænlegan kaupanda og eiganda. „Hlutverk móðurfélagsins verður fyrst og fremst að þjónusta dótturfélögin, þar á meðal Ölgerðina, sem munu þá geta einbeitt sé að framleiðslu-, markaðs- og sölumálum,“ segir hann.

En hvað með þá hættu að almenningur noti gamla nafnið áfram eftir allt saman? „Þetta er mjög góð spurning,“ svarar Jón og bætir hlæjandi við að kannski muni þau bara þurfa að bakka með þetta allt saman og breyta nafninu aftur! „Nei, svona í alvöru talað þá er þetta ekki eitthvað sem við óttumst því það er algjörlega í okkar höndum að byggja Beru upp sem öflugt vörumerki, samhliða því að halda vörumerkinu Ölgerðinni fyrir það sem hún er þekktust fyrir.“ 

En hvernig er svona nafnabreyting innleidd? Er ákveðin dagsetning þar sem skipt er um allar merkingar og undirskriftir eða gerist þetta yfir ákveðinn tíma?

Jón segir að þau séu að innleiða breytingarnar smám saman en ákveðnum hlutum hafi verið breytt strax, svo sem undirskriftum í tölvupóstum en öðrum hlutum verði breytt á næstu dögum og vikum, svo sem merkingum á húsinu. Mikið hafi verið lagt upp úr að upplýsa og virkja starfsfólk. Markmiðið er að það verði stolt af því að vinna hjá Beru,“ segir Jón að lokum.


Vörumerki V0140881 skráð 14. mars

Sótt var um skráningu orðmerkisins BERA í desember 2025. Það var birt til skráningar 14. janúar og skráð 14. mars síðastliðinn í flokkum 29,30,32,33,35,36,39 og 40, m.a. fyrir sultur og grauta, kaffi, te og kakó, bjór, óáfenga og áfenga drykki, rekstur, fjármálastjórnun, flutninga og geymslu á mat- og drykkjarvörum.

Starfsfólk Hugverkastofunnar velur skráð vörumerki mánaðarins

Skráð vörumerki mánaðarins er unnið eftir fyrirmynd annarra norrænna hugverkastofa. Markmiðið með því að velja eitt skráð vörumerki til umfjöllunar í hverjum mánuði er að vekja athygli á mikilvægi vörumerkjaskráninga og kynna starfsemi Hugverkastofunnar.

Starfsfólk stofnunarinnar kýs vörumerki mánaðarins úr hópi nýskráðra og nýendurnýjaðra íslenskra vörumerkja sem standa fyrir íslenska vöru og/eða þjónustu. Skráð vörumerki mánaðarins er vörumerki með skýr sérkenni, gott aðgreiningarhæfi og skemmtilega sögu að baki sér.

Bera var móðir Egils Skallgrímssonar og er skráð vörumerki mars-mánaðar - Hugverkastofan