8 tegundir vörumerkja sem hægt er að skrá

12. júní 2026Vörumerki
Flest lítum við þannig á að vörumerki sé nafn fyrirtækis, vöru eða þjónustu eða lógó. En það er hægt að skapa sér einkarétt á notkun allskonar vörumerkja með skráningu. Hér eru átta tegundir vörumerkja sem hægt er að skrá. Hvaða skráningar myndu henta þér?
- Nafn fyrirtækis, vöru eða þjónustu – Svokölluð orðmerki sem samanstanda af stökum orðum eða mörgum orðum saman, eru yfirleitt álitin veita sterka vernd. Kosturinn við orðmerki er m.a. sá að það heldur gildi sínu þó að lógói sé breytt.
- Lógó – Kannski eru lógó eða svokölluð myndmerki það sem fólk tengir sterkast við orðið vörumerki. Skráning á lógói kemur í veg fyrir aðrir geti notað sama eða svipað merki fyrir sambærilega vörur eða þjónustu.
- Nafn og lógó saman - Algengasta skráning íslenskra fyrirtækja er á svokölluðum orð- og myndmerkjum. Rétt er að benda á í því samhengi að það er heildarmynd skráðs merkis sem nýtur verndar.
- Slagorð – Hægt er skrá einstök orð en líka setningar sem vörumerki. Mikilvægt er þó að slíkar setningar séu ekki lýsandi fyrir viðkomandi vörur og þjónustu. Það er ekki hægt að fá skráð almenn orð eða setningar sem aðrir sem stunda viðskipti í sama geira þurfa að geta notað til að kynna sínar vörur og þjónustu.
- Litir – Hægt er skrá liti og litasamsetningar sem vörumerki ef þeir veita sérkenni. Eins og með vörumerki almennt mega litirnir ekki vera lýsandi. Það er t.d. ólíklegt að hægt væri að skrá grænan lit fyrir áburð eða grasfræ.
- Hljóð – Miðað við hversu sterkt neytendur tengja ákveðin hljóð og stef við ákveðin fyrirtæki, vörur eða þjónustu, er ótrúlega sjaldgæft að slík hljóð séu skráð vörumerki hér á landi. Hversu mörg auglýsingastef getur þú t.d. blístrað?
- Mynstur – Hægt er að skrá mynstur sem vörumerki og mynstur á merkjavörutöskum á borð við Louis Vuitton og Gucci eru skráð vörumerki.
- Sérstök útlitseinkenni – Það er hægt að skrá sérstök útlitseinkenni á vöru eða umbúðum sem vörumerki. Sérstakt útlit Toblerone súkkulaðsins er t.d. skráð vörumerki.
Skráning er einföld en mikilvæg fjárfesting sem getur skipt sköpum við uppbyggingu vörumerkja.
