6 atriði sem stundum valda misskilningi varðandi skráningu vörumerkja

21. júlí 2026Vörumerki
Vörumerkjaskráning er einföld í meginatriðum en það eru nokkur atriði sem stundum valda misskilningi hjá umsækjendum og öðrum:
- Vörumerki er ekki bara nafn eða lógó – Það er hægt að skrá alls konar vörumerki og oft er ástæða til að skoða hvort skrá skuli meira en bara nafn eða lógó fyrirtækis. Hægt er að skrá orðmerki, sem getur t.d. verið nafn fyrirtækis eða nafn ákveðinnar vöru eða þjónustu, bókstafir, tölustafir eða slagorð; myndmerki, sem getur verið lógó fyrirtækis eða lógó fyrir ákveðna vöru eða þjónustu; orð og myndmerki, þetta er algengasta skráningin og þá er yfirleitt um að ræða lógó og nafn saman. En það er líka hægt að skrá alls konar önnur einkenni vöru eða þjónustu sem vörumerki, t.d. mynstur, liti, þrívíddarlögun og hljóð.
- Skráning á Íslandi veitir aðeins vernd á Íslandi – Skráning á vörumerki hjá Hugverkastofunni veitir einkarétt á notkun merkisins á Íslandi eingöngu. Ef þú selur vörur eða þjónustu á öðrum mörkuðum ættir þú að skoða að skrá merkið þitt þar líka. Hægt er að sækja um skráningu á vörumerkjum annars staðar í gegnum Madrid-kerfi Alþjóðahugaverkastofnunarinnar og hjá Hugverkastofu Evrópusambandsins, EUIPO. Við mælum með að við slíkar umsóknir sé leitað aðstoðar sérfræðinga á sviði hugverkaverndar.
- Skráning á fyrirtæki er ekki það sama og skráning vörumerkis – Sumir halda að skráning fyrirtækjaheitis í fyrirtækjaskrá verndi það sjálfkrafa sem vörumerki. Það gerir hún ekki. Skráning fyrirtækjaheitis og skráning vörumerkis eru aðskilin ferli hjá ólíkum stofnunum og hafa ólík lagaleg áhrif.
- Ólíkir aðilar geta skráð sömu eða svipuð merki fyrir ólíkar vörur og þjónustu – Vörumerki eru skráð fyrir tiltekna flokka vöru og þjónustu. Sömu eða svipuð merki geta því verið skráð af mismunandi fyrirtækjum á óskyldum sviðum án þess að annað brjóti á réttindum hins. Það skiptir þess vegna miklu máli að óska eftir vernd í réttum flokkum þegar umsókn er lögð inn.
- Greitt er fyrir umsókn, ekki skráningu – Þegar sótt er um skráningu á vörumerki þarf að greiða umsóknargjald samkvæmt gjaldskrá. Gjaldið er innheimt fyrir kostnað við rannsókn á skráningahæfi vörumerkisins, ekki fyrir skráningu og fæst því ekki endurgreitt þó skráningu sé hafnað.
- Almennt er ekki hægt að skrá sérkennalaus eða lýsandi merki - Ef vörumerkið þitt samanstendur einungis af lýsingu á viðkomandi vöru eða þjónustu, eða er sérkennalaust, er hætt við að það sé óskráningarhæft. Ekki er hægt að skrá orð eða önnur tákn sem aðrir sem stunda viðskipta á sama sviði þurfa að geta notað.
Skráning er einföld en mikilvæg fjárfesting sem getur skipt sköpun við uppbyggingu vörumerkja.
