Samskiptastjóri
Eiríkur SigurðssonSamskiptastjórieirikur@hugverk.is

5 misgóðar ástæður fyrir því að skrá EKKI vörumerki

Fimm Misgóðar Ástæður

28. maí 2026Vörumerki


Hér er fimm misgóðar ástæður fyrir því af hverju þú ættir mögulega ekki að sækja um skráningu á vörumerkinu þínu.

1.  Þú vilt ekki einkarétt – Ef þú vilt að allir geti notað vörumerkið þitt fyrir hvaða vörur og þjónustu sem er ættir þú mögulega ekki að sækja um skráningu á vörumerkinu þínu.

2.  Þú treystir fólki fullkomlega – Ef þú hefur fulla trú á því að fólk sé ávallt gott og fyrirtæki heiðarleg og að engum muni nokkurn tíma detta í hug að herma eftir vörumerkinu þínu, ættir þú mögulega að sleppa því að sækja um skráningu.

3.  Almennt eða lýsandi merki - Ef vörumerkið þitt er almenns eðlis, alls ekki aðgreinandi eða sérkennandi, heldur lýsir bara viðkomandi vöru eða þjónustu á almennan hátt er mögulega ekki hægt að fá vörumerkið skráð og því kannski best að sleppa því að sækja um skráningu.

4.  Merkið þitt er eftirlíking – Ef vörumerkið þitt er eftirlíking af öðru merki og þú vonast til að fólk ruglist á þínu merki og einhverju skráðu merki, ertu líklega að brjóta á rétti annarra og ættir frekar að hætta notkun á merkinu en að reyna að fá það skráð.

5.  Við gátum ómögulega fundið fimmtu ástæðuna.

Staðreyndin er að skráning er einföld en mikilvæg fjárfesting sem getur skipt sköpum við uppbyggingu vörumerkja.

Meira um skráningu vörumerkja

Sækja um skráningu á vörumerki