5 góðar ástæður fyrir því að skrá vörumerki

10. apríl 2026Vörumerki
Af hverju er það góð hugmynd fyrir fyrirtæki og aðra rekstraraðila að sækja um skráningu á vörumerkjunum sínum hjá Hugverkastofunni?
1. Einkaréttur – Með skráningu hjá Hugverkastofunni öðlast eigandi vörumerkis einkarétt á notkun merkisins hér á landi fyrir ákveðna vöru og þjónustu. Það þýðir að með því að skrá vörumerki er hægt að banna öðrum að nota sama eða líkt merki fyrir vöru eða þjónustu sem er sambærileg við þá vöru og þjónustu sem merkið er skráð fyrir.
2. Skráning skapar verðmæti – Skráningin skapar áþreifanleg verðmæti úr óáþreifanlegri eign. Skráð vörumerki er hægt að selja, leigja út og jafnvel veðsetja.
3. Vörn gegn fölsunum og eftirlíkingum – Skráð vörumerki eru birt í alþjóðlegum gagnagrunnum og skráning fælir aðra frá því að nota sama eða svipað merki. Ef einhver fer að bjóða upp á, framleiða, selja eða flytja inn vörur eða þjónustu undir vörumerkinu þínu veitir skráning traustan grundvöll til að grípa til aðgerða gegn viðkomandi aðila.
4. Aukinn trúverðugleiki – Skráning á vörumerki sendir þau skilaboð til fjárfesta og annarra samstarfsaðila að vörumerkið sé vel varið og að eigandi þess hugi vel að vernd sinna hugverka. Skjalfest eign á vörumerki styrkir stöðu eiganda í samningaviðræðum við fjárfesta, dreifingaraðila og aðra viðskiptafélaga og er reyndar oft nauðsynleg forsenda fyrir því að hægt sé að hefja slíkar viðræður.
5. Grunnur að alþjóðlegri vörn – Á grundvelli íslenskrar skráningar á vörumerki er hægt að sækja um skráningu í flestum löndum heims í gegnum Madrid-kerfi Alþjóðahugverkastofnunarinnar, WIPO.
Skráning er einföld en mikilvæg fjárfesting sem getur skipt sköpum við uppbyggingu vörumerkja.
