Samskiptastjóri
Eiríkur SigurðssonSamskiptastjórieirikur@hugverk.is

Vel heppnaður viðburður helgaður íþróttatækni á Nýsköpunarviku

Game Changers (5)

04. maí 2026Viðburðir

Öflug nýsköpun á sviði íþróttatækni var til umræðu á viðburðinum Game Changers í Austurbæ í Nýsköpunarvikunni á fimmtudaginn var. 30. apríl. Þar var kastljósinu beint að fjölbreyttum nýsköpunarfyrirtækjum í íþróttatækni, vörum þeirra og þjónustu og hvernig þau vernda hugverkin sín. Það var mjög áhugavert að sjá og heyra hversu mikið er að gerast á þessu sviði hér á landi. Vonandi verður viðburðurinn til að stuðla að samtali og auknu samstarfi fyrirtækja á þessu sviði til framtíðar og auka athygli á geiranum.

Viðburðurinn var haldinn í samstarfi við Háskólann í Reykjavík og Össur í tilefni Iceland Innovation Week og Alþjóðahugverkadagsins (#WorldIPDay).

Borghildur Erlingsdóttir, forstjóri Hugverkastofunnar setti viðburðinn og ræddi mikilvægi þess að nýsköpunarfyrirtæki verndi hugverkin sín.

Elísabet Blöndal ljósmyndari var á staðnum til að fanga stemninguna.

Aron Albertsson, hönnuður hjá Össuri sagði m.a. frá þróun Össuar á Cheetah gervifótunum með gulu röndinni og frá samstarfi fyrirtækisins við fatlaða íþróttamenn.
Aron Albertsson, hönnuður hjá Össuri sagði m.a. frá þróun Össuar á Cheetah gervifótunum með gulu röndinni og frá samstarfi fyrirtækisins við fatlaða íþróttamenn.
Helgi Hjálmarsson, einn stofnenda og forstjóri Elva Golf, kynnti fyrirtækið sem notar staðlaðar myndbandsupptökur og gervigreind til að bæta golfsveifluna.
Helgi Hjálmarsson, einn stofnenda og forstjóri Elva Golf, kynnti fyrirtækið sem notar staðlaðar myndbandsupptökur og gervigreind til að bæta golfsveifluna.
Sindri Bergmann, vöruþróunarstjóri hjá Abler, sagði frá því hvernig nota megi einstök gögn fyrirtækisins til margskonar rannsókna, til dæmis á brottfalli barna og unglinga úr íþróttastarfi og frá útrás fyrirtækisins í Englandi. Hjá Abler starfa nú um 40 manns.

Arnar Lárusson, stofnandi og forstjóri Tymewear, kynnti fyrirtækið sem telur nú yfir 25 starfsmenn, þúsundir viðskiptavina, m.a. margt af fremsta íþróttafólki heims. Tymewear hefur þróað tækni sem mælir öndun til að greina þol og einstaklingsmiða þjálfun.
Arnar Lárusson, stofnandi og forstjóri Tymewear, kynnti fyrirtækið sem telur nú yfir 25 starfsmenn og þúsundir viðskiptavina, m.a. margt af fremsta íþróttafólki heims. Tymewear hefur þróað tækni sem mælir öndun til að greina þol og einstaklingsmiða þjálfun.
Jóna Marín Ólafsdóttir, rannsóknastjóri NeckCare, sagði frá einkaleyfisháðri tækni fyrirtækisins við að meta hálsskaða með því að mæla og skrá höfuðhreyfingar. Tæknin getur nýst íþróttamönnum í fjölmörgum íþróttum.

Hekla Gunnarsdóttir, verkfræðingur hjá KISO in motion, kynnti notkun þráðlausra vöðvarita til að fylgjast með og skrá virkni vöðva við þjálfun. Vöðvaritarnir eru í notkun hjá íþróttamönnum og liðum um allan heim.

Baldur Stefánsson stjórnarformaður OZ Sports sagði frá tækni fyrirtækisins til að stýra sjónvarpsútsendingum frá fótboltaleikjum og frá nýgerðum samningi við Sky Sports um útsendingar frá kvennaboltanum í Super Leage í Englandi.

Hafrún Kristjánsdóttir, prófessor og deildarforseti íþróttadeildar Háskólans í Reykjavík, kynnti rannsóknir HR á sviði íþróttatækni og lokaði viðburðinum. Hún hvatti til þess viðburðinn yrði aðeins upphafið að auknu samráði og samstarfi og stakk upp á að fólk sem starfaði við íþróttatækni á Íslandi hittist héðan í frá einu sinni á ári til skrafs og ráðagerða.
Hafrún Kristjánsdóttir, prófessor og deildarforseti íþróttadeildar Háskólans í Reykjavík, kynnti rannsóknir HR á sviði íþróttatækni og lokaði viðburðinum. Hún hvatti til þess viðburðurinn yrði aðeins upphafið að auknu samráði og samstarfi og stakk upp á að fólk sem starfaði við íþróttatækni á Íslandi hittist héðan í frá einu sinni á ári til skrafs og ráðagerða.
Hátt í hundrað manns sóttu Game Changers viðburðinn í Austurbæ.
Hátt í hundrað manns sóttu Game Changers viðburðinn í Austurbæ.
Að erindum  loknum spreyttu fyrirlesarar og gestir sig á pílu.
Að erindum loknum spreyttu fyrirlesarar og gestir sig á pílu.