Samskiptastjóri
Eiríkur SigurðssonSamskiptastjórieirikur@hugverk.is

Vefnámskeið um gildi hönnunarskráninga á Íslandi, í Noregi og hjá Evrópusambandinu

Stórviðburður

13. maí 2026Viðburðir

Hönnuðum og öðru áhugafólki um hönnun býðst að taka þátt í ókeypis vefnámskeiði 13. maí næstkomandi þar sem fjallað verður um hvernig hægt er að nýta skráningar á hönnun til að tryggja samkeppnisforskot. Sérfræðingar frá hugverkastofum Íslands og Noregs og frá EUIPO (European Union Intellectual Property Office) munu fara yfir skráningarferlið og hvernig skráning verndar hönnun. 

SKRÁNING

Dagskrá:

9:00  Inngangsorð

9:10  Kynning á norska hönnunarskráningarkerfinu
         Marie Rasmussen, Head of Section, Designs, Patentstyret

9:40  Kynning á íslenska hönnunarskráningarkerfinu
         Jóhann Skúli Jónsson, lögfræðingur, Hugverkastofunni

10:10 Kynning á hönnunarskráningarkerfi EUIPO
          Sophia Bonne, Business and Development Department, EUIPO

10:40 Spurningar og svör

Til umfjöllunar:

  • Hvað er hönnunarskráning og hvaða vernd veitir hún fyrir hönnuði og fyrirtæki?
  • Hvernig skráir þú hönnun á Íslandi, í Noregi og í Evrópusambandinu?
  • Hvernig getur hönnunarskráning styrkt samkeppnisforskot þitt?

Námskeiðið er haldið í samstarfi hugverkastofa Íslands, Noregs og Evrópusambandsins.

Fyrir hvern?

Námskeiðið er sérstaklega fyrir hönnuði sem hafa hannað sérstakar vörur en ekki enn verndað hönnunina með skráningu á viðeigandi mörkuðum en allt áhugafólk um hönnun og hugverkaréttindi er velkomið.

Námskeiðið fer fram á ensku. Til þess að fá Zoom-tengil þarft þú að skrá þig á vef EUIPO.

SKRÁNING

Vefnámskeið um gildi hönnunarskráninga á Íslandi, í Noregi og hjá Evrópusambandinu - Hugverkastofan