Samskiptastjóri
Eiríkur SigurðssonSamskiptastjórieirikur@hugverk.is

Nýsköpunarþing verður haldið 29. október

Nýsköpunarþing Web

20. júlí 2026NýsköpunViðburðir

Nýsköpunarþing Íslands 2026 verður haldið fimmtudaginn 29. október næstkomandi í fyrirlestrarsalnum í Grósku.

Í ár verður nýsköpun á landsbyggðinni í brennidepli.  Eins og ávallt er markmiðið með Nýsköpunarþingi að varpa ljósi á samspil vísinda, tækni, rannsókna og þekkingar annars vegar og nýsköpunar, vöruþróunar, framleiðslu og markaðsstarfs hins vegar. Nýsköpunarverðlaun Íslands fyrir árið 2026 verða afhent á þinginu.

Við hvetjum áhugasöm til þess að taka tímann frá.

Dagskrá birtist hér á síðunni þegar nær dregur.

Smelltu hér til að skrá þig á Nýsköpunarþing 2026.

Beint streymi verður frá Nýsköpunarþinginu.

Nýsköpunarþing Íslands er haldið árlega í samstarfi Hugverkastofunnar, Rannís, Íslandsstofu og Nýsköpunarsjóðsins Kríu.

Við hlökkum til að sjá þig!

Nýsköpunarþing verður haldið 29. október - Hugverkastofan