Samskiptastjóri
Eiríkur SigurðssonSamskiptastjórieirikur@hugverk.is

Nýsköpunarþing 2026 - Hugvit og tækifæri um allt land

Nyskopunarthing

05. október 2026Viðburðir

Hugverkastofan, Rannís, Íslandsstofa, og Nýsköpunarsjóðurinn Kría bjóða til Nýsköpunarþings 2026 í Grósku þann 29. október kl. 14:00-16:00.

Nýsköpunarverðlaun Íslands 2026 verða veitt á þinginu.

Nýsköpunarþing 2026 mun að þessu sinni beina sjónum að tækifærum og áskorunum í nýsköpun á landsbyggðinni. Á þinginu koma fram fulltrúar fyrirtækja og frumkvöðlar úr ólíkum atvinnugreinum og landshlutum og segja frá sinni reynslu af nýsköpun. Hvað þarf til að góð hugmynd geti vaxið og dafnað á landsbyggðinni? Hvaða tækifæri felast í staðbundinni þekkingu og sérstöðu ólíkra svæða?

Skráning á Nýsköpunarþing

Markmið þingsins er að varpa ljósi á kraftinn í nýsköpun um land allt og þær aðstæður sem geta stuðlað að frekari vexti og verðmætasköpun.

Í lok þingsins veitir Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, Nýsköpunarverðlaun Íslands 2026.

Dagskrá

Opnunarávarp
Ágúst Hjörtur Ingþórsson, forstöðumaður Rannís

Setning Nýsköpunarþings 2026
Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra 

Tækifæri til nýsköpunar í ferðaþjónustu 
Knútur Rafn Ármann, stofnandi og eigandi Friðheima 

Öflug samvinna í vistkerfi nýsköpunar
Sesselja Reynisdóttir, Drift EA

Nýsköpun í verki 
Stutt erindi frá fyrirtækjum í nýsköpun

Startup Landið
Anna Lind Björnsdóttir, verkefnastjóri hjá Samtökum sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra

Pallborðsumræður
Hvað þarf til að nýsköpun þrífist um land allt? 

Afhending Nýsköpunarverðlauna Íslands 
Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra 

Fundarstjóri og stjórnandi pallborðs: Freyr Eyjólfsson

Að lokinni dagskrá verður boðið upp á léttar veitingar.

Skráning á Nýsköpunarþing

Morgunkaffi í Grósku

Stofnanirnar sem standa sameiginlega að Nýsköpunarþingi, ásamt KLAK, bjóða í morgunkaffi þar sem gestum gefst tækifæri til að kynnast betur þeirri þjónustu, stuðningi og tækifærum sem þær bjóða frumkvöðlum og fyrirtækjum. Fulltrúar kynna starfsemi sína í stuttu máli og að því loknu gefst svigrúm fyrir samtal, spurningar og ráðgjöf.

Hvenær: Fimmtudaginn 29. október kl. 10:00 til 11:30
Hvar: Hjá Íslandsstofu í Grósku - Hugmyndahúsi, Kristínargötu 1, 102 Reykjavík.

Skráning í morgunkaffi

Þingið er haldið árlega í samstarfi Hugverkastofunnar, Rannís, Íslandsstofu og Nýsköpunarsjóðsins Kríu.