EPO-einkaleyfanámskeið fyrir tæknifyrirtæki

25. júní 2026Viðburðir
Evrópska einkaleyfastofan, EPO, býður upp á námskeið um einkaleyfi og einkaleyfavernd fyrir tæknifyrirtæki, 25.-26. júní.
Um er að ræða átta klukkustunda námskeið á netinu þar sem þátttakendur öðlast þekkingu og færni til að taka upplýstar ákvarðanir varðandi einkaleyfavernd á fyrstu stigum fyrirtækjareksturs.
Námskeiðið skiptist í tvær lotur. Í fyrri lotunni er fjallað um gerð og tilgang hugverkastefnu og mikilvægi einkaleyfa í viðskiptaáætlun tæknifyrirtækja, samkeppnisstöðu, fjárfestingarhæfni og verðmætasköpun. Í seinni lotunni verður fjallað um umsýslu einkaleyfa og hagnýt atriði sem tengjast því að greina einkaleyfishæfar uppfinningar, vernd þeirra og utanumhald í gegnum allt nýsköpunarferlið.
Námskeiðið felst í fyrirlestrum, umræðum og hagnýtum dæmisögum. Markmiðið er að þátttakendur öðlist öryggi til að fóta sig í einkaleyfaumhverfinu til að nýta einkaleyfi sem drifkraft í vexti tæknifyrirtækja.
Námskeiðið er sett saman fyrir styrkþega Evrópska nýsköpunarráðsins (EIC) en er opið öllum áhugasömum frumkvöðlum, starfsfólki tæknifyrirtækja, tækniyfirfærsluskrifstofa, háskóla og öðrum áhugasömum.
Námskeiðið er haldið samstarfi við EIC með stuðningi frá European IP Helpdesk.
