Ísland fellur um tvö sæti í nýsköpunarvísitölu Alþjóðahugverkastofnunarinnar (WIPO) 2026

01. október 2026Tölfræði
Ísland er í tuttugasta og sjötta sæti landa í heiminum í nýútgefinni nýsköpunarvísitölu Alþjóðahugverkastofnunarinnar (WIPO), Global Innovation Index 2026 og lækkar um tvö sæti frá í fyrra. Ísland var í 17. sæti vísitölunnar árið 2021 og hefur fallið um níu sæti á fimm árum.
Ísland heldur stöðu sinni nokkuð vel á milli ára þegar litið er til aðstæðna til nýsköpunar og er þar í 21. sæti en var í 20. sæti í fyrra. Þegar hins vegar er horft til afraksturs nýsköpunar hefur Ísland fallið niður í 33. sæti, úr 29. sæti í fyrra og úr 16. sæti árið 2021 og hefur aldrei verið neðar á listanum. Ítarlegar upplýsingar um stöðu Íslands í nýsköpunarvísitölunni er að finna á vef WIPO.
„Það er mjög jákvætt að sjá að aðstæður til nýsköpunar eru hér almennt taldar nokkuð góðar en það er hins vegar umhugsunarefni að góðar aðstæður og fjárfesting í nýsköpun virðast ekki skila sér nægilega vel í afurðum, fyrirtækjum og útflutningi,“ segir Borghildur Erlingsdóttir, forstjóri Hugverkastofunnar. „Nýsköpunarvísitala WIPO veitir gott tækifæri til að greina hvar skóinn kreppir, hvað við erum að gera vel og hvað við getum gert betur til að færa aðstæður og afrakstur nýsköpunar nær því sem gerist á hinum Norðurlöndunum. Það er t.d. mjög áhugavert að sjá að hlutfallslega færri háskólanemar útskrifast hér úr vísinda- og tæknigreinum en almennt gerist í þeim löndum sem við berum okkur saman við og fer frekar fækkandi. Þar eru bersýnilega tækifæri til úrbóta.“
„Það er umhugsunarefni að góðar aðstæður og fjárfesting í nýsköpun virðast ekki skila sér nægilega vel í afurðum, fyrirtækjum og útflutningi,.
Borghildur Erlingsdóttir
Forstjóri Hugverkastofunnar
Sviss, Svíþjóð, Bandaríkin, S-Kórea, Singapore og Bretland skipa fimm efstu sæti listans í ár. Ísland er nú í 15. sæti listans af 39 Evrópuþjóðum. Hin Norðurlöndin raðast sem fyrr hátt á listanum þar sem Svíþjóð er í næstefsta sæti eins og í fyrra, Finnland er í 7. sæti, Danmörk í 9. sæti og Noregur í því 21.
Nýsköpunarvísitalan er sett saman úr hátt í 80 mismunandi mælikvörðum sem tengjast annars vegar aðstæðum til nýsköpunar og hins vegar afrakstri nýsköpunar. Meðal annars er litið til útgjalda til rannsókna og þróunar, hátækni, mannauðs og hugverkaverndar. Mælikvarðarnir eru flokkaðir niður í sjö stoðir nýsköpunar: innviði, stofnanir, þróunarstig atvinnulífs, afrakstur skapandi greina, þróunarstig markaðar, mannauð og rannsóknir og afrakstur þekkingar og tækni. Gæta ber að því að þeir mælikvarðar sem notaðir eru við gerð nýsköpunarvísitölunnar hafa tekið breytingum á milli ára og því ber að taka samanburði á milli ára með varúð. Fyrir Ísland er einnig nokkuð um að gögn vanti eða að byggt sé á nokkurra ára gögnum (sjá hér).
Ísland skorar í ár hátt fyrir innviði og stofnanir en hins vegar lágt fyrir mannauð og rannsóknir og fyrir afrakstur þekkingar og tækni. Helsta ástæða þess að Ísland fellur á listanum á milli ára er lækkun á einkunn fyrir afrakstur skapandi greina sem skýrist af lækkun einkunnar fyrir nokkra mælikvarða en einnig af því að önnur lönd hafa hækkað í einkunn.
Þegar litið er til einstakra mælikvarða skorar Ísland hæst allra landa fyrir rafmagnsframleiðslu á íbúa, notkun á umhverfisvænni orku og fjölda höfuðléna og er í þriðja sæti fyrir fjölda samninga um áhættufjármagn miðað við landsframleiðslu og fjölda vísindagreina. Þá stendur Ísland vel að vígi varðandi stöðugt viðskiptaumhverfi (4. sæti), kvikmyndaframleiðslu (5. sæti), þekkingarfrek störf (6. sæti), útgjöld til menntamála (7. sæti) og sameiginlegar birtingar opinberra rannsóknastofnanna og atvinnulífs (8. sæti).
Ísland skorar hins vegar lágt fyrir stærð innanlandsmarkaðar (133. sæti), landsframleiðslu miðað við orkunotkun (130. sæti), fjölda hönnunarskráninga miðað við landsframleiðslu (107. sæti), framleiðniaukningu vinnuafls (102. sæti), hlutfall háskólanema sem útskrifast úr STEM-greinum (100. sæti), fjölbreytni innlendrar iðnaðarframleiðslu (98. sæti), hlutfall útflutnings skapandi greina af heildarviðskiptum (93. sæti), þróun snjallforrita (92. sæti), hátækniframleiðslu (82. sæti) og verðmæti einhyrninga (58. sæti).
Um nýsköpunarvísitölu WIPO
Nýsköpunarvísitala er gefin út af Alþjóðahugverkastofnuninni, (World Intellectual Property Organization, WIPO) og kemur nú út í 19. sinn. Vísitalan byggir á 79 fjölbreyttum mælikvörðum frá alþjóðlegum stofnunum og einkaaðilum sem eru notaðir til að meta nýsköpun og nýsköpunarumhverfi í 139 löndum. Frá því að nýsköpunarvísitalan var fyrst birt árið 2007 hefur hún mótað viðmið um mælingar á nýsköpun og verið grundvöllur stefnumótunar stjórnvalda víða um heim. Frekari upplýsingar um einstaka mælikvarða er að finna hér.
Um Alþjóðahugverkastofnunina (WIPO – World Intellectual Property Organization)
Alþjóðahugverkastofnunin er ein af stofnunum Sameinuðu þjóðanna. Ísland hefur verið aðili að henni frá árinu 1986. Stofnunin ber ábyrgð á þeim samningum sem skapa samræmda umgjörð um hugverkaréttindi, s.s. alþjóðleg skráningarferli, útfærslu umsókna og skráninga og hlutverk hugverkastofa í hverju ríki. Á vegum stofnunarinnar starfa ýmsir vinnuhópar að uppfærslum og nútímavæðingu samninganna og verklags í kringum þá. Hugverkastofan á fulltrúa á þeim fundum sem varða vörumerki, einkaleyfi og hönnun og sækir auk þess allsherjarþing stofnunarinnar ár hvert.
