Ársskýrsla Hugverkastofunnar 2025

09. apríl 2026Hugverkastofan
Ársskýrsla Hugverkastofunnar fyrir árið 2025 er komin út á hugverk.is. Í skýrslunni er m.a. að finna yfirlit yfir starfsemi stofnunarinnar árið 2025, tölfræði um fjölda umsókna og veitt réttindi, lykiltölur úr rekstri og pistla eftir starfsfólk Hugverkastofunnar um hugverkaréttindi.
Í ávarpi Borghildar Erlingsdóttur, forstjóra, kemur m.a. fram að á árinu 2025 hafi áhersla verið lögð á að styrkja tengsl við samstarfsaðila innanlands og erlendis og efla samtal um mikilvægi hugverkaverndar fyrir nýsköpun og verðmætasköpun. Einna hæst bar að árlegur samráðsfundur 39 aðildarríkja Evrópsku einkaleyfastofunnar (EPO) var haldinn hér á landi í júlí samhliða afhendingu Hugvitsverðlauna ungra frumkvöðla í Hörpu. Þá fullgilti Hugverkastofan, fyrir Íslands hönd, Riyadh-hönnunarsamninginn.
Í lok árs 2025 voru um 9.600 einkaleyfi í gildi hér á landi, 66.000 skráð vörumerki og 1.500 hönnunarskráningar. Umsóknum um landsbundin einkaleyfi fækkaði um 9% milli ára og staðfestingum evrópskra einkaleyfa fækkað um 16%. Alþjóðlegum umsóknum um skráningu vörumerkja fækkaði um 4% á árinu en landsbundnum umsóknum fjölgaði um 4%. Landsbundnum hönnunarumsóknum fjölgaði um 59% á árinu.
Rekstrartekjur Hugverkastofunnar árið 2024 námu 639 milljónum króna (með fyrirvara um óbirtan ársreikning).
