Umsóknarfrestur til 31. maí um CSP námsstyrk og stuðning fyrir EQE-hæfniprófið

06. maí 2026Alþjóðlegt samstarf
Opnað hefur verið fyrir umsóknir um námsstyrk og annan námsstuðning í CSP stuðningsáætlun Evrópsku einkaleyfastofunnar (EPO) vegna undirbúnings fyrir EQE-hæfniprófið (European Qualifying Examination). Umsóknarfrestur er til 31. maí 2026.
EQE-hæfniprófið veitir réttindi til að starfa sem evrópskur einkaleyfasérfræðingur (European Patent Attourney) við málsmeðferð hjá EPO.
Þátttakendur í áætluninni fá stuðning til að standast öll fimm próf EQE og fá viðurkenningu sem fullgildir fulltrúar gagnvart EPO.
Skilyrði umsóknar
Umsækjendur þurfa að geta skuldbundið sig til þriggja ára undirbúnings fyrir EQE-hæfniprófið og ætla sér að ljúka prófinu í áföngum samkvæmt eftirfarandi áætlun:
- Hluti F árið 2027
- Hlutar M1 og M2 árið 2028
- Hlutar M3 og M4 árið 2029
Hvers konar námsstyrkur og stuðningur er í boði?
Mögulegt er að fá tvenns konar stuðning:
- Námsstyrk og stuðning í gegnum allt ferlið, þar á meðal þjálfun, aðgang að námsefni, leiðsögn frá reyndum evrópskum einkaleyfasérfræðingum og fjárhagslegan stuðning fyrir greiðslu prófgjalda og annars kostnaðar.
- Fulla endurgreiðslu skráningar- og prófgjalda fyrir öll fimm EQE prófin.
Hugverkastofan getur tilnefnt allt að fjóra einstaklinga til að hljóta heildarstuðning í gegnum CSP áætlunina og allt að sex einstaklinga til að hljóta fulla endurgreiðslu prófgjalda.
Hvernig er sótt um?
Umsóknarfrestur til 31. maí 2026 kl. 16:00. Fyrir þann tíma þurfa umsækjendur að:
- Kynna sér skilyrði fyrir þátttöku
- Fylla út og senda inn rafrænt umsóknareyðublað fyrir CSP
Með umsókninni þarf að fylgja:
- Kynningarbréf
- Ferilskrá
- Stuðningsbréf frá vinnuveitanda
- Staðfesting á skráningu í EQE 2027, hluta F
- Staðfesting á fastri búsetu á Íslandi (umsækjandi þarf að hafa búið á Íslandi í minnst sex mánuði)
Hugverkastofan fer yfir allar umsóknir og tilnefnir þátttakendur í stuðningsáætluninni í fyrir 10. júlí. Öllum umsækjendum verður svarað í tölvupósti.
Mikilvægar dagsetningar
- Umsóknarfrestur: 31. maí 2026
Styrkþegar valdir: fyrir 10. júlí 2026
Upphaf náms og leiðsagnar: október 2026
F-hluti EQE: 1. mars 2027
Um EQE?
EQE-hæfniprófið veitir réttindi til að starfa sem löggiltur evrópskur einkaleyfasérfræðingur (European Patent Attorney) og vera fulltrúi umsækjenda og réttargæsluaðili í málum gagnvart EPO. EQE-hæfniprófið samanstendur af fimm skriflegum prófum sem reyna á röksemdafærslu, dómgreind og lagaskilning við gerð og meðferð einkaleyfaumsókna fyrir EPO, allt frá umsókn til veitingar og málsmeðferðar eftir veitingu einkaleyfis. Prófinu var komið á fót árið 1979 og í dag eru um 15.000 einstaklingar á lista EPO yfir löggilda aðila.
Um CSP
CSP stuðningsáætlunin er þriggja ára verkefni sem Evrópska einkaleyfastofan stendur að í samstarfi við aðildarríki sín, þar á meðal Ísland. Verkefnið felst í því að veita kandídötum sem stefna á að taka EQE eða EPAC hæfniprófin faglega ráðgjöf, fræðslu og fjárhagslegan stuðning.
Markmiðið er að auka fjölbreytileika og hæfni innan evrópska einkaleyfageirans.
Hægt er að hafa samband við EPO í gegnum sérstaka vefgátt til að senda spurningar varðandi CSP og EQE.
Þér er einnig velkomið að hafa samband við okkur hjá Hugverkastofunni með því að senda tölvupóst á hugverk@hugverk.is, hringja í síma 580 9400 eða senda okkur skilaboð á samfélagsmiðlum.
