Tveir umsækjendur frá Íslandi hljóta námsstuðning fyrir hæfnipróf fyrir löggilta evrópska einkaleyfasérfræðinga

29. júlí 2026Alþjóðlegt samstarf
Tveir umsækjendur frá Íslandi hafa hlotið aðgang að CSP stuðningsáætlun Evrópsku einkaleyfastofunnar (EPO) sem felur í sér námsstyrk og annan stuðning við undirbúning fyrir EQE-hæfniprófið. Það veitir rétt til starfa sem löggiltur evrópskur einkaleyfasérfræðingur (European Patent Attorney) og vera fulltrúi umsækjenda og réttargæsluaðili í málum gagnvart EPO.
Fyrir árið 2026 hlutu 48 nýir umsækjendur frá 17 aðildarríkjum EPO stuðning til að þreyta EQE-hæfniprófið, auk 38 sem halda áfram þátttöku frá fyrra ári.
Markmiðið með CSP stuðningsáætluninni er að styðja einstaklinga við undirbúning fyrir EQE-prófið og auka fjölbreytileika og hæfni innan einkaleyfageirans í Evrópu. Um er að ræða þriggja ára verkefni sem Evrópska einkaleyfastofan stendur að í samstarfi við aðildarríki sín, þar á meðal Ísland. Verkefnið felst í því að veita kandídötum sem stefna á að taka EQE-hæfnisprófið og öðlast þannig réttindi sem löggiltir einkaleyfasérfræðingar gagnvart EPO, faglega ráðgjöf, fræðslu og fjárhagslegan stuðning. Hugverkastofan getur tilnefnt allt að fjóra umsækjendur í áætlunina, þar af eru tvö sæti sérstaklega ætluð konum.
Í ár var stuðningi við fyrir EPAC-hæfniprófið fyrir umsýslu evrópskra einkaleyfa (European Patent Administration Certification, EPAC) bætt inn í stuðningsáætlunina og fengu 16 einstaklingar aðgang að þeim hluta í ár.
Hugverkastofan óskar umsækjendunum innilega til hamingju og hvetur áhugasama til að kynna sér EQE og EPAC hæfniprófin og fylgjast með næstu umsóknarfrestum inn í CSP-stuðningsáætlunina.
