Samskiptastjóri
Eiríkur SigurðssonSamskiptastjórieirikur@hugverk.is

Tveir einstaklingar frá Íslandi hljóta námsstuðning fyrir hæfnipróf fyrir löggilta evrópska einkaleyfasérfræðinga

CSP Web

29. júlí 2026Alþjóðlegt samstarf

Tveir sérfræðingar á sviði einkaleyfa frá Íslandi hafa hlotið aðgang að CSP stuðningsáætlun Evrópsku einkaleyfastofunnar (EPO) sem felur í sér námsstyrk og annan stuðning við undirbúning fyrir EQE-hæfniprófið. Það veitir rétt til starfa sem löggiltur evrópskur einkaleyfasérfræðingur (European Patent Attorney) og vera fulltrúi umsækjenda og réttargæsluaðili í málum gagnvart EPO.

Fyrir árið 2026 hlutu 48 nýir umsækjendur frá 17 aðildarríkjum EPO stuðning til að þreyta EQE-hæfniprófið, auk 38 sem halda áfram þátttöku frá fyrra ári.

Markmiðið með CSP stuðningsáætluninni er að styðja einstaklinga við undirbúning fyrir EQE-prófið og auka fjölbreytileika og hæfni innan einkaleyfageirans í Evrópu. Um er að ræða þriggja ára verkefni sem Evrópska einkaleyfastofan stendur að í samstarfi við aðildarríki sín, þar á meðal Ísland. Verkefnið felst í því að veita kandídötum sem stefna á að taka EQE-hæfnisprófið og öðlast þannig réttindi sem löggiltir einkaleyfasérfræðingar gagnvart EPO, faglega ráðgjöf, fræðslu og fjárhagslegan stuðning. Hugverkastofan getur tilnefnt allt að fjóra umsækjendur í áætlunina, þar af eru tvö sæti sérstaklega ætluð konum.

Í ár var stuðningi við fyrir EPAC-hæfniprófið fyrir umsýslu evrópskra einkaleyfa (European Patent Administration Certification, EPAC) bætt inn í stuðningsáætlunina og fengu 16 einstaklingar aðgang að þeim hluta í ár.

Hugverkastofan óskar þátttakendunum innilega til hamingju og hvetur áhugasama til að kynna sér EQE og EPAC hæfniprófin og fylgjast með næstu umsóknarfrestum inn í CSP-stuðningsáætlunina.

Meira um CSP stuðningsáætlunina