„Viljum þróa hljóðfæri sem fólk getur orðið ástfangið af“

25. febrúar 2026Vörumerki
Eiðistorg er kannski ekki fyrsti staðurinn sem fólk sækir í leit að ástinni. En hana er nú samt þar að finna því nýsköpunarfyrirtækið LOVE Synthesizers er með skrifstofu í Nýsköpunarhúsinu við Eiðistorg. Orð- og myndmerkið LOVE er skráð vörumerki febrúarmánaðar hjá Hugverkastofunni.
Kári Halldórsson, tölvunarfræðingur, og Markús Bjarnason, tónlistarmaður, tveir af stofnendum fyrirtækisins, segjast elska tónlist og hljóðgervla og að markmið þeirra sé að þróa og framleiða hljóðfæri sem fólk geti orðið ástfangið af. Þess vegna hafi í raun aldrei annað nafn komið til greina á fyrirtækið en LOVE og fyrsta hljóðfærið er auðvitað First Love.

What is LOVE?
Það er ekki hægt að byrja viðtal um LOVE án þess að falla fyrir freistingunni og spyrja hvað ást sé: „What is LOVE?“ Eftir svip viðmælendanna að dæma er þetta ekki í fyrsta sinn sem þeir fá þessa spurningu. Kári verður til svara: „First Love er nýtt hljóðfæri sem við höfum þróað fyrir tónlistarmenn og alla sem hafa áhuga á að skapa tónlist og leika sér með hljóð. Þetta er rafhljóðfæri eða hljóðgervill með snertiskjá og viðmóti sem gerir hljóðsköpun aðgengilega og skapandi. Viðmótið sýnir grunnbylgjur og það má toga þær til og pota í þær og þannig breyta fílingnum í hljóðinu með snertingu,“ segir hann.

Það er auðheyrt af máli Kára að hann elskar í alvöru það sem hann er að gera. Hann segir að með First Love sé hægt að búa til tónlist í skapandi flæði þar sem tónlistamaðurinn kanni, hlusti og byggi upp, frekar en að hann fylgi fyrir fram ákveðnum reglum.
Markús bætir við að þau skynji að sá tími sé kominn aftur að fólk vilji eiga sitt eigið alvöru hljóðfæri, ekki bara enn eitt appið í tölvunni eða símanum og að fólk vilji aftur snúa alvöru tökkum. „Við viljum gefa fólki frelsi til tónlistarsköpunar og First Love veitir fólki tækifæri til að rannsaka og skapa í flæði og með hjartanu og tilfinningunum frekar en heilanum eða rökhugsun. Það er hægt að taka hljóðfærið með sér hvert sem er og það er t.d. hægt að fara út í náttúruna og verða fyrir innblæstri og spila og semja tónlist á staðnum,“ segir hann. „ Svo er líka hægt að vinna með hljóð og skala sem eru vistuð í tækið og það er mjög auðvelt að nota það í hljóðupptökuveri.“
„Ég bjó þetta til“
En þýðir eitthvað að búa til svona græju á tímum þegar gervigreindin getur búið til nánast hvað sem hún er beðin um? Er það kannski gervigreind sem sér um að mynda hljóðin í LOVE? Það hljómar ekki ólíklegt þar sem Kári er fær tölvunarfræðingur og kenndi forritun í mörg ár við Háskólann í Reykjavík.
Svarið kemur á óvart. Kári segir að það sé skýr stefna fyrirtækisins að nota ekki gervigreind við þróun á First Love. Þau skrifa allan kóðann sjálf og ætla ekki að nota gervigreind til að búa til myndir eða texta í tengslum við markaðssetningu á þessu fyrsta hljóðfæri sínu. Kári segir að sjálfsagt megi kalla þetta gamaldags nálgun, en fólk tengi sterkt við þessa ákvörðun og hún hafi vakið athygli á sýningum. Fyrir þeim sé sagan á bak við sköpunina mikilvægur hluti af verðmætinu: að geta staðið með verkinu og sagt: „Ég bjó þetta til.“

Hröð þróun í örgjörvum skapaði tækifæri
En þá að markaðnum, á lítið tónlistartæknifyrirtæki á Íslandi möguleika á alþjóðlegum markaði? Kári segir að markaðurinn fyrir rafhljóðfæri sé lifandi og nýjungagjarn. Það séu vissulega stórir framleiðendur til staðar, en á sama tíma sé rými fyrir smærri fyrirtæki sem koma með skýra og óvænta nýjung því fólk sé ávallt að bíða eftir the „next big thing“. Þeir sjá fyrir sér að First Love verði akkúrat það.
Hann segir að ör þróun í örgjörvum og smátölvum hafi skapað litlum aðilum eins og þeim tækifæri til að koma inn á markaðinn með metnaðarfull tæki og prófa hugmyndir hraðar en áður. Lítil og ný fyrirtæki séu oft meira skapandi og frjálsari til að prófa eitthvað algjörlega nýtt en stóru framleiðendurnir, sem séu eðli málsins samkvæmt íhaldssamari.
Aðspurðir segjast þeir ekki meðvitað tengja sig við Ísland í markaðssetningu en ímynd Íslands og Reykjavíkur og velgengni íslenskra tónlistarmanna á alþjóðlegum markaði muni samt örugglega hjálpa þeim við að vekja athygli á First Love. Í þeirra huga snýst þetta samt ekki endilega um að gera næsta lag sem fer á toppinn á Spotify, heldur að gefa fólki tæki til að njóta sköpunarinnar, prófa sig áfram og finna sinn eigin hljóm.
Litríkt vörumerki í „svörtum“ bransa
Í heimi rafhljóðfæra eru hljóðfærin yfirleitt svört og hvít, útlitið tæknilegt og myndmálið íhaldssamt. LOVE fer aðra leið. Aðalliturinn þeirra er skærbleikur og allt er málað sterkum litum. Þau leggja líka mikið upp úr því að útlitið sé heildstætt og gefi gott væb. Það er ekki laust við að hönnun og uppröðun takkanna gefi hljóðfærinu ákveðið retró-framtíðarlegt yfirbragð. Hljóðfærið sjálft kemur í tveimur litaútgáfum, bleikri og svarthvítri, með dassi af bleiku.

Fyrstu fjöldaframleiddu íslensku hljóðfærin
LOVE hefur kynnt First Love á alþjóðlegum sýningum og boðið upp á forsölu til að byggja upp tengsl, fá endurgjöf og byggja upp framleiðsluferli með réttu samstarfsfólki. Þannig hafa þau m.a. komist í samband við framleiðanda í Hong Kong og dreifiaðila í Evrópu.
Áform fyrirtækisins eru að hefja fjöldaframleiðslu á hljóðfærinu þegar líður á árið, hleypa því formlega af stokkunum á stórsýningunni Superbooth í Berlín í maí, þar sem LOVE verður með bás með Genki og fleiri íslenskum fyrirtækjum, og koma því svo í almenna sölu í 500 verslunum Sonic Sales í Evrópu í haust.
Þeir segja að þetta verði fyrsta íslenska hljóðfærið sem verði fjöldaframleitt og að það sé lykill að því að halda kostnaði niðri og gera hljóðfærið aðgengilegt fyrir alla. Hljóðfærið mun kosta 595 evrur út úr búð, eða um 85.000 krónur.
Hafa sótt um skráningu á Íslandi, í Evrópu og Bandaríkjunum
LOVE er gott dæmi um hvernig uppbygging á vörumerki er hluti af viðskiptaáætlun frá upphafi. Kári og Markús segja að mikilvægur liður í henni sé að verja vörumerkið með skráningum og fyrirtækið á nú þrjú skráð vörumerki hjá Hugverkastofunni: orð- og myndmerkið LOVE og orðmerkin First Love og LOVE Synthesizers.
Á grunni þeirra skráninga hefur verið sótt um skráningu í Evrópu og Bandaríkjunum í gegnum alþjóðlegt umsóknakerfi Alþjóðahugverkastofnunarinnar, WIPO, og fyrirtækið er að skoða skráningu í Japan. Þá vinnur félagið að því að verja útlit hljóðfærisins með hönnunarskráningu hér á landi og ætlunin er að fá hönnunina einnig skráða erlendis.
Það á eftir að koma í ljós hvort First Love verður „the next big thing“, en með skráðum vörumerkjum og hönnunarvernd í ferli hefur LOVE lagt traustan grunn að sókn á alþjóðlega markaði. Það verður spennandi að fylgjast með hvernig hljómgrunn First Love fær þar.
Vörumerki V0140330 skráð 15. febrúar
Sótt var um skráningu orð- og myndmerkisins LOVE í október 2025. Það var birt til skráningar 15. desember og skráð 15. febrúar síðastliðinn í flokkum 9 og 15, m.a. fyrir ýmiss konar hljóðfæri, magnara og hugbúnað.
Starfsfólk Hugverkastofunnar velur skráð vörumerki mánaðarins
Skráð vörumerki mánaðarins er unnið eftir fyrirmynd annarra norrænna hugverkastofa. Markmiðið með því að velja eitt skráð vörumerki til umfjöllunar í hverjum mánuði er að vekja athygli á mikilvægi vörumerkjaskráninga og kynna starfsemi Hugverkastofunnar.
Starfsfólk stofnunarinnar kýs vörumerki mánaðarins úr hópi nýskráðra og nýendurnýjaðra íslenskra vörumerkja sem standa fyrir íslenska vöru og/eða þjónustu. Skráð vörumerki mánaðarins er vörumerki með skýr sérkenni, gott aðgreiningarhæfi og skemmtilega sögu að baki sér.
