Umsóknarfrestur til 19. febrúar um námsstyrk og stuðning fyrir EPAC-sérfræðivottun 2026

13. febrúar 2026Alþjóðlegt samstarf
Umsóknarfrestur í nýja stuðningsáætlun (Candidate Support Programme, CSP) Evrópsku einkaleyfastofunnar (EPO) vegna undirbúnings fyrir EPAC-sérfræðivottun fyrir umsýslu evrópskra einkaleyfa (European Patent Administration Certification) 2026 er til 19. febrúar 2026 kl. 17:00.
Hvernig sækir þú um?
- Ljúktu auðkenningarferli (ID verification) í EQC-gátt EPO.
- Fylltu út og sendu inn rafrænt umsóknareyðublað fyrir 19. febrúar 2026, kl. 17:00.
Umsókn skal innihalda:
- Staðfesting á fastri búsetu á Íslandi
- Umsóknarbréf
- Ferilskrá
EPAC
EPAC sérfræðivottunin er formleg og viðurkennd evrópsk vottun á þekkingu og færni við umsýslu með evrópsk og alþjóðleg einkaleyfi og vottar m.a. þekkingu á ferlum og reglum við meðferð og veitingu einkaleyfa hjá Evrópsku einkaleyfastofunni, þar með talið fyrir eitt evrópskt einkaleyfi (Unitary Patent), málaferli og viðhald einkaleyfa eftir veitingu. Vottunin gefur einstaklingum tækifæri á starfsþróun og getur opnað ný tækifæri, hér á landi og erlendis, innan nýsköpunar- og einkaleyfageirans.
CSP
CSP-stuðningsáætlunin felst í námsstyrk, aðgangi að námsefni og ýmsum öðrum stuðningi fyrir einstaklinga sem hyggjast þreyta próf fyrir EPAC sérfræðivottun í umsýslu evrópskra einkaleyfa (EPAC). Umsækjendur sem hyggjast þreyta a.m.k. tvo af fjórum prófhlutum EPAC 2026 geta sótt um stuðning frá mars til október 2026. Ekki er gerð krafa um að umsækjendur hafi menntun eða starfsreynslu á sviði einkaleyfaumsýslu.
Nánari upplýsingar um skilyrði fyrir stuðningi í gegnum CSP-áætlunina má finna hér.
2.300 evru námsstyrkur
Hugverkastofan getur frá og með árinu 2026, valið einn einstakling á ári til að hljóta fjárhagslegan stuðning, leiðsögn og þjálfun til undirbúnings fyrir EPAC-prófið sem haldið verður 9. október 2026. Gert er ráð fyrir að námið taki sex mánuði og styrkurinn nemur alls 2.300 evrum, eða um 340.000 kr. Sambærilegur stuðningur hefur verið og er áfram í boði fyrir einstaklinga sem hyggjast sækja sér réttindi sem evrópskir einkaleyfasérfræðingar.
Hugverkastofan mun velja þátttakanda til að hljóta aðgang að CSP-stuðningsáætluninni í byrjun mars og undirbúningsnámskeið og handleiðsla hefjast um miðjan mars.
