Samskiptastjóri
Eiríkur SigurðssonSamskiptastjórieirikur@hugverk.is

Innleiðing á CP13 og CP15 verkefnum EUIPO

Euipo

24. mars 2026Alþjóðlegt samstarf

Hugverkastofan og Hugverkastofa Evrópusambandsins (EUIPO) hafa í sameiningu útbúið tvenn ný innleiðingarskjöl í tengslum við CP verkefni, þ.e. annars vegar CP13 sem fjallar um mat á því hvenær umsækjandi vörumerkis geti talist vera í vondri trú og hins vegar CP15 sem varðar samanburð vöru og þjónustu.

Innleiðingarskjölin byggja á verkefnunum eins og þau voru samþykkt á samstarfsvettvangi EUIPO, European Union Intellectual Property Network (EUIPN), en eru aðlöguð að íslenskri löggjöf og fordæmum. Skjölin veita því gagnlegar skýringar á því hver viðmiðin eru hér á landi í tengslum við vonda trú og samanburð á vöru á þjónustu, sem og  hvernig það samræmist framkvæmd í Evrópu.

Öll innleidd CP verkefni má finna hér