Lögfræðingur
Jóhann Skúli JónssonLögfræðingur

Erling hafði betur gegn High Advanced Activity Land

Vefur 2026 (500373) (3)

09. júní 2026Vörumerki

Hugverkastofa Evrópusambandsins, EUIPO, úrskurðaði fyrir nokkru í ógildingarmáli vegna vörumerkisins HAALAND. Í málinu hafði Erling Haaland farið fram á ógildingu merkisins HAALAND, sem sótt var um af pólskum umsækjanda. Norski markahrókurinn taldi að umsóknin hefði verið lögð fram í vondri trú og að umsækjandinn væri einungis að reyna að græða á nafni og orðspori leikmannsins.

Umsækjandinn hafnaði því að hafa sótt um merkið í vondri trú og sagðist einfaldlega ekki þekkja Erling Haaland. Þá hélt hann því líka fram að HAA hluti merkis síns væri skammstöfun fyrir "High Advanced Activity", og að hann hefði háleitar hugmyndir um uppbyggingu viðskiptaveldis undir því heiti.

Í málum þar sem byggt er á þeim lagagrunni að sótt hafi verið um skráningu á vörumerki  í vondri trú, getur sá sem krefst ógildingarinnar eftir atvikum þurft að sanna að umsækjandinn hafi vitað um tilvist betri réttar. Í málinu gat Haaland ekki bent á sín eigin vörumerki því hann hafði ekki skráð nafn sitt sem vörumerki og þurfti hann því að sanna að umsækjandi merkisins hafi verið meðvitaður um tilvist sóknarmannsins á umsóknardegi.

Haaland byggði ekki síst á því sem hann taldi órjúfanlega tengingu sína við pólska framherjann Robert Lewandowski. Fyrir þá sem ekki þekkja til þá er Lewandowski einn markahæsti leikmaður í sögu knattspyrnunnar, núverandi leikmaður Barcelona og sennilega vinsælasti og þekktasti íþróttamaður í sögu Pólverja. Haaland benti á að Lewandowski væri þjóðhetja í Póllandi og lagði fram fjölmargar greinar úr pólskum miðlum sem innihéldu samanburð á Lewandowski og Haaland, með tilliti til frammistöðu, titla og ekki síst markafjölda. Taldi hann þetta sýna með óyggjandi hætti að umsækjandinn, pólskur ríkisborgari, gæti ekki annað en verið meðvitaður um hver hann væri.

EUIPO var sammála Haaland og taldi ljóst að pólski umsækjandinn hefði verið í vondri trú. Hann gæti ekki falið sig á bak við þá staðreynd að Erling Haaland spilaði í ensku Úrvalsdeildinni og væri frá Noregi (tvö markaðssvæði utan Evrópusambandsins) og þá tók nefndin einnig undir sjónarmið Haaland þegar kom að tengingu hans við pólskan markað í gegnum Lewandowski: „Considering Robert Lewandowski’s renown in Poland, it goes without saying that his (sporting) endeavours and achievements receive significant national press attention. If the applicant has been consistently (i.e. not once, but on several occasions) mentioned in Polish press coverage of Robert Lewandowski, it is unimaginable that the EUTM proprietor was unaware of the applicant’s name and fame.“

Skráning merkisins var því felld úr gildi á grundvelli þess að umsækjandinn var sannanlega í vondri trú. Hinn raunverulegi sigurvegari er þó kannski Robert Lewandowski sem fékk þarna ókeypis greiningu á eigin ágæti.

Erling hafði betur gegn High Advanced Activity Land - Hugverkastofan